Hallóóó ég er komin
affftuuurrr!!
Ég ætla að "reyna að vera dugleg að blogga" höömm

en það kemur í
ljós ef ég nenni því ég er nú ekki oft í tölvunni útaf mín er í
fokki! Hleðslutækið á henni er eyðilagt og það er ekki til eitt
svona hleðslutæki á íslandi gaman gaman... En ég er með tölvuna
hans Elvars á meðan sem betur fer.. en hún er ekkert
skemmtileg.
En allavega ég
ætla að byrja á því að segja aðeins frá helginni
Föstudagurinn: Ég
vaknaði (auðvitað) kíkti niðrá café.. og hitti svo stelpurnar Tanja
kom til eyja og við stelpurnar hittumst og fórum á bubba tónleikana
sem var fokk leiðinlegir.. fórum svo heim til Bergs spjölluðum þar,
hitti svo Önnu Ester við tókum smá rúnt og kíktum svo á Pálma var
eitthvað partý þar sem var hundleiðinlegt í svo ég fór heim bara og
að sofa..
Laugardagurinn: Vaknaði og fór niðrá café hékk þar hitti
svo Ernu fór til hennar niðri bakarí og svo fórum við til hennar
fengum okkur að éta og svo niðrá café og fengum okkur kakó..svo fór
hún í matarboð og ég niðrá café.. svo fór ég að hitta gullmolann
minn hann Viggó sæta! var þar í smá tíma ég og pabbi. Pabbi og Rósa
spjölluðu á meðan að ég og Viggó lékum okkur og spjölluðum voða
saman og horfðum á sjónvarpið.. Eftir það komu Tanja Erna og Sara
Dögg til mín og við fórum að spjalla um góða tíma! hah og svo þegar
Sigrún var búin i vinnu fórum við smá rúnt kíkja á lífið í bænum
sem var ógeðslega mikið.. hömm eftir það fórum við til Bergs... og
svo fór ég bara heim..að læra og skirfa þetta hérna
núna
Sunnudagurinn :
verður eitthvað skemmtilegur ég ætla að byrja á horfa á
spennandi leik Man Utd - Liverpool.. og fara svo með minn sætasta
frænda út að labba hann Viggó! og gera eitthvað skemmtilegt með
stelponum 
En það er búið að
gerast samt spennandi í sumar ég skal segja eitthvað
hérna...
- Þjóðhátíðin 2006
við í clueless vorum geggjað flottar!
- Tenerife ferðin
sem ég og Elvar fórum í hún var geðveik!!
og Helena Stefán og
Sigrún voru þarna líka !
- Ég og Elvar
keyptum okkur bíl Wv Golf 05' GTI geggjað flottur

- ég fer að verða
stór stelpa 10 dagar í ammælið og bílprófið þá verð ég komin á
göturnar hehh! Og þá fæ ég köku

- svo auðvitað bara
vinna og vinna og vinna... maður á sér ekkert líf!
Ennn ég nenni ekki
að segja meir nema ég skal vera duglega að reyna að blogga svona af
og til ætla samt að gera það meira á Clueless síðunni! meira að
gerast þar en á þessari síðu...
En ég ætla að
reyna að fara að læra og fara úr þessari tölvu verið þið blessuð!
elska ykkur :* og má auðvitað ekki gleymaaaa!!
"Má ég Fá
Köku?"